Já gleymdi að segja
Að við Sísli og Svavar bróðir hans fórum aftur til Kerteminde á ströndina en mættum bara soldið seint (19:00) svo sólin var ekkert alveg að gera sig. Fórum svo til Odense og ákváðum að keyra í gegnum Valsmose (ekki viss á stafsetningunni) sem er "hoodið" hérna eða tyrkjahverfið.... Project blokkir dauðans og skyndilega varð mjög "dimmt" úti að líta. Fórum svo heim til þeirra sem svo skemmtilga vill til að er gamla íbúðin okkar Stínu, héngum þar og fengum okkur öl og fórum svo út að snæða kínverskan takeaway á 30 DKK og spiluðum svo pool á Sharks... ég bar yfirburði varðandi skotnýtingu og endaði svo illa á því að skjóta svörtu niður sem er alveg dæmigert fyrir mig.
Hitti eina af nágrönnum mínum á ganginum í fyrsta skipti, ungt og myndarlegt par sem var alveg ótrúlega nice og spjallaði við mig í 20 mins um allt, þau vilja endilega fá mig í heimsókn og ég lofaði að grilla með þeim þegar Stína kemur til baka.

0 Comments:
Post a Comment
<< Home