Ótrúlegt, maðurinn er með blogg

Monday, August 14, 2006

Quote dagsins

There is no distance on this earth as far away as yesterday.-

Draumur....

Síðustu nótt dreymdi mig að ég hitti gamlan vinnufélaga og vin á pöbb í Köben (Snæbjörn)... Hann bauð mig þar að borði og gaf í glas á meðan hann var að beita forstjóra Icelandair fjárkúgunum út á ljósmyndir sem sýndu fram á málmskemmdir í völdum þotum flotans......

Sunday, August 13, 2006

Helgin búin

Jæja, þá er helgin búin.

Fimmtudaginn... Fór snemma úr vinnunni og spilaði golf á geggjuðum velli hérna í Odense. Ég hitti kúluna helvíti vel alltaf og fékk geggjað kikk úr þessu.... Fokk ég held ég sé kominn með golfbakteríuna. Er bara að hugsa um að koma mér á driving range að skjóta :P
Fór svo í rosa fínan 5 rétta dinner með birgjum og öðru gengi úr vinnunni. Enduðum á djammi downtown. Ein beyglan reyndi að komast með mér heim og var að hringja í mig eftir að ég fór snemma til að losna frá þessu..... Yukk.
Vaknaði of seint í vinnuna daginn eftir :Þ og fattaði þegar ég var kominn út að bíllinn var niðrí bæ :P

Horfði á Rockstar og drakk bjór með Sísla á föstudaginn....
Las, horfði á vidjó og spilaði 40 pool leiki við Sísla í gær og drakk duglega af bjór áður en ég lognaðist út af.

Vaknaði snemma í morgun... Vinna, spila póker og spjalla við Sísla.

Stína var að djamma framundir morgun. Sakna hennar. Hlakka til að heyra í henni á eftir.

Monday, August 07, 2006

Otrulega margt

Ad eg kem ekki ordum yfir thad... For til Islands og hitti fjölskyldu og vini... mjög "súrsætt". Kom aftur í gærnótt. Hitti Sísla í gærnótt, tókum pool og spjölluðum. Vaknaði í dag og mætti snemma í vinnuna. Mjöööög skrýtið. Fór í IKEA og keypti þrjá lampa og lýsti upp íbúðina. Fór í basked, svitnaði eins og svín, fór á æfingu og lyfti... Drakk vatn, borðaði kjúkling og drakk jógúrt.... Ojjj hvað ég er búinn að lifa hollt síðustu vikur líkamlega.